Framsókn
Ásgrímur Ingólfsson
4. sæti Framsókn
Ásgrímur Ingólfsson, skipstjóri á Ásgrími Halldórssyni. Kvæntur Þórgunni Torfadóttur, skólastjóra. Þau eiga þrjú börn. Ásgrímur er varamaður í bæjarstjórn og formaður Atvinnumálanefndar. Einnig formaður Ungmennafélagsins Sindra. Hans helstu áherslur eru atvinnumál til sjávar og sveita, það er sama hvort það eru fyrirtækin eða stafsfólkið sem um er fjallað, það verður ekki án hvors annars. Það er einnig klárlega hlutverk sveitarfélagsins að hana mati að verja þau atvinnutækifæri sem eru til staðar og aðstoða við fjölgun þeirra. Einnig eru íþróttamál honum hugleikin og hefur hann lagt hendur á plóginn með að efla það starf í sveitafélaginu, og er hann virkur í nokkrum íþróttagreinum.



