Framsókn
Hugrún Harpa Reynisdóttir
Hugrún Harpa Reynisdóttir

Það er fjölmargt í sveitarfélagi okkar sem við Hornfirðingar getum verið stolt af.

Hugrún Harpa Reynisdóttir

 

Undirrituð tekur þátt í sveitarstjórnarkosningum í fyrsta sinn og því ástæða til að kynna mig aðeins fyrir kjósendum. Ég er 27 ára gömul og er uppalin á Mýrunum. Undanfarin fjögur ár hef ég búið á Höfn ásamt eiginmanni mínum og syni. Ég lauk BA prófi í félagsfræði í febrúar 2009 frá Háskóla Íslands og starfa nú sem leiðbeinandi á leikskólanum Krakkakoti. Áhugasvið mitt liggur fyrst og fremst í æskulýðs- og tómstundamálum í sveitarfélaginu og vil ég leggja mitt af mörkum til þess að styrkja það starf sem verið er að vinna. Einnig hef ég áhuga á menningarmálum og umhverfismálum. 

Menningarlíf sveitarfélagsins

Það er fjölmargt í sveitarfélagi okkar sem við Hornfirðingar getum verið stolt af. Eitt af því er hversu blómlegt menningarlíf okkar er. Mikilvægt er að við höldum áfram að efla og styðja menningarstarf í sveitarfélaginu, hvort sem það er í þéttbýli eða dreifbýli. Nauðsynlegt er að hafa hugfast að félagsheimilin eru sveitunum mikilvæg til þess að þar megi halda uppi lifandi menningar og félagsstarfi. Samþykkt var stefnumótun í menningar- og safnamálum á yfirstandandi kjörtímabili. Stefnan varðar leiðina en í síbreytilegu umhverfi þarf slík stefna sífellt að vera í endurskoðun. Segja má að gildi menningarstarfsins sé tvíþætt, annars vegar sem afþreying fyrir íbúa héraðsins og eykur með því lífsgæði en hins vegar sem vaxandi þáttur í atvinnustarfssemi, svo sem með öflugu starfi innan stofnunarinnar en einnig með stuðningi við frumkvöðla- og nýsköpunarstarf nýrra og starfandi fyrirtækja.

Áhersla á fjölbreytt æskulýðsstarf

Oft hefur mátt lesa fyrir kosningar óskir um að skapa æskunni þannig umhverfi að hún velji það að vera heima í héraði eins lengi og kostur er á námsárum sínum. Þrátt fyrir þessar óskir hefur málaflokkur æskunnar sjaldan fengið þá athygli sem hann verðskuldar. Mikilvægt er að móta í okkar góða samfélagi metnaðarfulla stefnu í æskulýðsmálum sem er líkleg til að skila okkur í hóp fremstu sveitarfélaga á landinu. Breytingar urðu á umhverfi æskulýðsstarfsins þegar það var flutt undir Menningarmiðstöðina, samhliða því sem æskulýðs- og tómstundaráð var lagt niður, við breytingar á nefndaskipan hjá sveitarfélaginu. Eftir slíkar breytingar er gott að gefa sér tíma til að endurmeta það sem hefur verið gert og kjörið tækifæri skapast til að móta stefnu sem er líkleg til að skila okkur æskulýðsstarfi sem við getum verið stolt af.  Fjölbreytni hefur skort í æskulýðsstarfi í sveitarfélaginu og er það miður því mikilvægt er að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi svo stuðla megi að þátttöku sem flestra í fjölbreyttu og faglegu frítíma og tómstundastarfi.

Stórkostlegt er að sjá nýja reiðhöll hestamannafélagsins rísa og mun hún gjörbreyta aðstöðu hestamanna á svæðinu. Stuðningur sveitarfélagsins við framkvæmdina hefur verið mikill og ekki má gleyma framlagi þeirra fjölmörgu einstaklinga sem hafa gefið vinnu sína. Reiðhöllin mun styðja við æskulýðsstarf hestamannafélagsins og um leið auka möguleika æskunnar í sveitarfélaginu. Samvinna sveitarfélagsins og félagasamtaka sem standa fyrir æskulýðsstarfi getur skilað okkur árangri sem skiptir miklu fyrir velferð æskunnar.

 

Hugrún Harpa Reynisdóttir

Skipar 8. sæti á lista Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica