Framsókn
xB_ThrirEfstu
xB_ThrirEfstu

Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga

Senn líður að sveitarstjórnarkosningum og er undirbúningur hafinn á öllum vígstöðvum fyrir þær. 

Við sem höfum ákveðið að bjóða okkur fram undir merki Framsóknar í Sveitarfélaginu Hornafirði erum tilbúin að vinna með ykkur íbúunum, hvort sem er í þéttbýli eða dreifbýli, að áframhaldandi uppbyggingu og framförum, ásamt því að standa vörð um þau lífsgæði sem við búum við í dag. 

Framsóknarmenn hafa á yfirstandandi kjörtímabili verið í meirihlutasamstarfi með fulltrúum Samfylkingar og hefur það gengið vel að okkar mati.  Við leggjum verk okkar óhrædd í heldur kjósenda og stefna okkar í komandi kosningum er að vera áfram leiðandi afl og vera áfram stærsta framboðið í sveitarfélaginu með þrjá bæjarfulltrúa.

Kosningaskrifstofa Framsóknar verður eins og undanfarið í elsta íbúðarhúsinu á Höfn,  Kaupfélagshúsinu og verður opnuartími auglýstur síðar.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica