Framsókn
Frambjóðendur í þremur efstu sætum Framsóknar
Frambjóðendur í þremur efstu sætum Framsóknar
Reynir Arnarson Ásgerður K. Gylfadóttir Kristján S. Guðnason

Sterk fjárhagsstaða.

Fjárhagur Sveitarfélagsins Hornafjarðar er sterkur eins og fram kemur í ársreikningi fyrir árið 2009, um það verður ekki deilt.
Framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins og stofnana þess á yfirstandandi kjörtímabili nema alls rúmlega 911 milljónum króna reiknað á verðlagi hvers árs.

Þrátt fyrir allt eru skuldir á hvern íbúa hér með því lægsta sem gerist hjá sambærilegum sveitarfélögum eða um 690 þús.  

 

Á þessu ári koma breytingar sem gerðar voru á rekstri Grunnskóla Hornafjarðar að fullu til framkvæmda og við það sparast tugir milljóna á ári.

Af þessu má ljóst vera að við erum betur í stakk búin til að takast á við framtíðina en mörg önnur sveitarfélög.

 

Að halda vöku sinni.

Rekstur Sveitarfélagsins Hornafjarðar er samt á engan hátt auðveldur og ber fulltrúum í bæjarstjórn sífellt að vera á varðbergi og taka ákvarðanir sem gagnast samfélaginu sem allra best með ráðdeild og útsjónarsemi að leiðarljósi.

 

Framfarir.

Ekki fer á milli mála að íþróttamannvirki hér eru orðin sambærileg við það sem best gerist á landsbyggðinni. Húsnæði Hafnarskóla var tekið til gagngerra endurbóta enda löngu tímabært. Hafist var handa við að gera Sindrabæ þannig úr garði að hann henti betur til kennslu og flutnings tónlistar. Nýr 150 m viðlegukantur hefur verið byggður í Álaugarey og er þá fátt eitt nefnt.  Á næstu árum þarf að halda áfram að leggja fjármuni í viðhald og endurbætur á húsnæði sveitarfélagsins. t.d. blasir við að gera þurfi bragarbót á húsnæði Heppuskóla og kanna verður kosti þess að ráðast í tengibyggingu á milli íþróttahúss og sundlaugar.

 

Sveitarfélagið þarf að hlúa vel að byggð í sveitum. Síðustu misseri hafa fært okkur sanninn um mikilvægi fjölbreytts atvinnulífs. Stofnun atvinnu- og rannsóknasjóðs og stuðningur sveitarfélagsins við smáframleiðslu matvæla hefur að stórum hluta farið til sveitanna.  Þá studdi sveitarfélagið við lagningu ljósleiðarakerfis í Öræfum og hluta Suðursveitar en ekki má láta deigan síga í fjarskiptamálum, jarðhitaleit stendur yfir á nokkrum stöðum og eru bundnar nokkrar vonir við að hún skili viðunandi árangri á næstu misserum. En betur má ef duga skal, framþróun í kornrækt, stuðningur við orkuöflun, aukin vetrarferðaþjónusta og uppbygging á vegum Vatnajökulsþjóðgarðs við náttúruperlur svæðisins eru allt verkefni sem sveitarfélagið verður að leggja lið.

Við þurfum einnig að beita okkur af auknum þunga í baráttunni fyrir fjármögnun vegalagningar yfir Fljótin svo hún megi verða að veruleika á næstunni.

 

Framtíðin.

Næsta kjörtímabil verður án efa markað af stöðu íslenska ríkisins og hvernig því tekst að vinna sig í út úr núverandi ástandi.

Eitt helsta verkefni nýrrar bæjarstjórnar verður að verja eins og kostur er hag fjölskyldna,fyrirtækja og stofnana í sveitarfélaginu og sjá til þess eins og kostur er, að þau lífsgæði sem við búum við í dag tapist ekki. Það kann að verða snúið en með samheldni og skynsemi ásamt þeirri ágætu stöðu sem ríkir í fjármálum ætti okkur íbúum sveitarfélagsins að takast það.


Merktu X við B fyrir bjarta framtíð.


Reynir Arnarson

Ásgerður K. Gylfadóttir

Kristján S. Guðnason

 

Skipa þrjú efstu sætin á lista Framsóknar og stuðningsmanna þeirra í sveitarstjórnarkosningunum þann 29. maí 2010.

 

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica