Framsókn
Kósýkvöld fyrir konur
Kósýkvöld fyrir konur
Úr myndasafni

Kósý, konur og kosningar

 

Á fimmtudaginn klukkan 20.30 verður konukvöld á kosningaskrifstofu Framsóknar í Kaupfélagshúsinu. Skvísurnar á framboðslista Framsóknar og stuðningsmanna þeirra láta sig flest varða og langar til að eiga spjall við konur um málefni sveitarfélagsins. Sveitarstjórnarmálin varða konur og karla á öllum aldri.  Þar er verið að fjalla um velferð okkar og leggja grunn að samfélagi fyrir athafnir.  En sveitarstjórnarmálin eru líka upplifun og gleði.  Blanda af þessu öllu skapar þau lífsgæði sem við búum við í Sveitarfélaginu Hornafirði og því ber að fagna. 

Konuspjall og huggulegheit í Kaupfélagshúsinu er eitthvað sem engin kona lætur framhjá sér fara.  Meira en aldargamlir veggir Kaupfélagshússins geyma fjársjóð minninga og nú ætlum við að bæta í þann sjóð.  Þar sem konur koma saman verða oft líflegar umræður.  Jafnt stórar sem smáar hugmyndir ræddar og oftar en ekki verða framsæknar hugmyndir að veruleika.   Saman hafa konur oft lyft grettistaki, það sannar sagan okkur.

Skvísurnar í Framsókn

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica