Framsókn
xB_ThrirEfstu
xB_ThrirEfstu

Velferð, athafnir, upplifun = LÍFSGÆÐI.

Góður rómur var gerður að málflutningi Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra á sameiginlegum framboðsfundum allra framboðanna í Sveitarfélaginu Hornafirði.

Fundirnir voru haldnir í Hrolllaugsstöðum í Suðursveit og í Nýheimum.  Fjölmennt var á fundinum í Nýheimum en færri mættu í Hrollaugsstaði, enda mikið annríki í sveitum þessa dagana.

Í kosningunum þann 29. maí n.k. leggur Framsókn  verk sín undanfarin ár og framtíðarsýn,  í dóm kjósenda .  Samhentur hópur hefur undanfarnar vikur unnið að mótun stefnu fyrir næsta kjörtímabil og fengið til liðs við sig fjölmarga íbúa úr samfélaginu til skrafs og ráðagerða.   Megin áherslur þessarar vinnu hafa verið dregnar saman í eitt skjal, Topp 10 - 2010 til framsóknar.  Því hefur verið dreift á öll heimili.  Ítarlegri stefnuskrá er síðan að finna á vefnum www.rikivatnajokuls.is/xb    Kjörorð næstu ára eru velferð, athafnir, upplifun = LÍFSGÆÐI.

Að undanförnu hafa frambjóðendur heimsótt íbúa í sveitum og móttökur verið afar góðar.  Næstu daga  er ætlunin að heimsækja fyrirtæki og stofnanir í þéttbýlinu og ræða við íbúa um  þau málefni sem helst brenna á þeim.   

Kosningaskrifstofa Framsóknar er í Kaupfélagshúsinu og verður opin alla daga fram að kosningum, nema á hvítasunnudag.  Gríðarlega góð stemning var við opnun hennar á Uppstigningardag  og  margir líta inn á hverjum degi til að ræða málin við frambjóðendur.  Nú er lokaspretturinn framundan og við hvetjum alla þá sem vilja leggja okkur lið,  að hafa samband við einhvern frambjóðenda eða kíkja við á kosningaskrifstofunni.   Öll aðstoð og hvatning er þegin með þökkum.

 

Frambjóðendur B listans

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica