Framsókn
Elín Magnúsdóttir
Elín Magnúsdóttir
Elín Magnúsdóttir

Ég þori, get og vil!

Fyrir tæpum 40 árum sungu konur á öllu landinu baráttusönginn ”Áfram stelpur.” Baráttusöng sem átti að vekja okkur til umhugsunar um það launamisrétti sem þá átti sér stað milli karla og kvenna. Þetta var fyrir rúmum 30 árum síðan. Núna er árið 2010 og ennþá erum við konur að berjast fyrir jafn sjálfsögðum hlut og launajafnrétti. Ótrúlegt en satt. Við erum ekki bara að berjast fyrir launajafnrétti heldur einnig jöfnum rétti og karlar til setu í hinum ýmsu stjórnum, nefndum og ráðum hjá hinu opinbera og í atvinnulífinu. Ráðherra sveitastjórnamála hrundi af stað, ekki fyrir löngu síðan, sérstöku átaki ásamt Jafnréttisstofu, til að fjölga konum í sveitastjórnum. Vonandi mun það skila okkur fleiri konum í sveitastjórnir og ábyrgðarstöður hjá hinu opinbera og í atvinnulífinu. Þetta getur ekki orðið að veruleika, nema með samstilltu átaki karla og kvenna. Jafnrétti er ekki bara ”kvennamál” heldur kemur það okkur öllum við, bæði konum og körlum. Ég trúi ekki að nokkur maður vilji í dag, sjá konu sína, dóttur, móður, systur eða vinkonu beitta órétti eingöngu vegna kynferðis, eða hvað?

Á undanförnum misserum hafa geisað snarpir sviptivindar um íslenskt samfélag, svo vægt sé til orða tekið. Við höfum orðið vitni að því að tiltölulega fáir ónafngreindir einstaklingar í framvarðarsveit íslensks atvinnulífs, virðast hafa misst allt sem heitir eðlilegt jarðsamband við umheiminn, í stað þess ”plögguðu” þeir sig í samband við hinn illræmda ”mammon” og hugsuðu um það eitt að græða og græða ennþá meira, hvað sem það kostaði. Og hverjar eru svo afleiðingarnar? Við vitum öll hverjar þær eru og óþarfi að rekja þær hér. Ég vona bara að þessi harmleikur, eins og ég kýs að kalla það verði okkur öllum kennslubókardæmi um það hvernig EKKI á að haga sér. Við eigum að lýta til gamallra og góðra gilda og hugsa um leið til þess sem skipta okkur mestu máli, þ.e. börnin okkar, fjölskyldan og samskiptin hvert við annað. Ég leyfi mér að velta upp þeirri spurningu hér, hvort þessi ”harmleikur” hefði orðið að veruleika ef útrásarvíkingarnir hefðu verið konur?

Sveitastjórnakosningar eru á næsta leiti og höfum við orðið vör við það í hinum ýmsu fjölmiðlum að undanförnu. Í okkar ágætu fjölmiðlum Eystrahorni og samfélagsvefnum okkar, rikivatnajokuls.is hafa frambjóðendur verið að kynna sig að undanförnu og sín helstu áhugamál. Að vera þátttakandi í sveitastjórn er afskaplega skemmtilegt og gefandi starf. Þar fáum við tækifæri til að hafa áhrif á okkar nærsamfélag með beinni þátttöku í undirbúningi, ákvörðunum og framkvæmdum ýmissa verkefna sem koma okkar samfélagi við. Til þess að skapa gott samfélag þar sem okkur öllum getur liðið vel þurfum við á skoðunum kvenna að halda sem og karla. Konur eru nú einu sinni helmingur íbúa jarðarinnar og því eru skoðanir þeirra, lífssýn og lífsreynsla jafn mikilvæg okkar samfélagi og skoðanir, lífssýn og lífsreynsla karla. Við höfum stundum ólíkar skoðanir á því í hvernig samfélagi við viljum búa í. Það á jafnt við um hin svokölluðu mjúku mál sem og önnur mál  t.d. skipulagsmál og atvinnumál svo eitthver séu nefnd. Því beini ég orðum mínum til kvenna og hvet þær eindregið til að koma skoðunum sínum á framfæri, taka þátt með greinaskrifum eða með því að heimsækja kosningaskrifstofu framsóknarmanna og láta ljós sitt skína. Þar er fólk sem vill hlusta á samborgara sína og vinna í þeirra þágu.

Undirrituð hefur tekið þátt í málefnum sveitarfélagsins um nokkurra ára skeið og öðlast þannig dýrmæta reynslu og þekkingu. Nú hef ég tekið þá ákvörðun að draga mig í hlé og gefa öðrum tækifæri á að taka við. Ég vil nota tækifærið og þakka öllu því frábæra og góða fólki sem ég hef unnið með og kynnst á þessum árum, fyrir samfylgdina og samstarfið. Þetta er lífsreynsla sem ég hefði ekki viljað verða af og met ég hana mikils. Að lokum óska ég tilvonandi sveitastjórnarmönnum velfarnaðar í sínum störfum fyrir sveitarfélagið allt og íbúa þess til sjávar og sveita.


Elín Magnúsdóttir, í 14 sæti á lista framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica