Framsókn
Hafnarbraut 2, 780 Höfn - hvað er nú það?
Frambjóðendur Framsóknar og stuðningsmanna þeirra þakka þeim fjölmörgu sem lögðu leið sína á kosningaskrifstofuna við formlega opnun hennar í gær 13. maí.
Við minnum á að kosningaskrifstofan er nú opin alla virka daga frá kl. 19-21 og 10-12 á laugardögum og hvetjum við alla til að koma við, spjalla við frambjóðendur og kynna sér áherslur framboðsins í kosningunum 29. maí n.k.
Hér að neðan má sjá nokkrar af helstu áherslum okkar fyrir komandi kjörtímabil:
(með því að smella hér er hægt að nálgast skjalið á pdf)
TOPP 10 – 2010 Í FRAMSÓKN
- Fylgt verði eftir þeim breytingum sem gerðar hafa verið í leik- og grunnskóla, starfsemi þeirra styrkt enn frekar. Móta stefnu í æskulýðs- og tómstundamálum m.a. með forvarnir að leiðarljósi. Stutt verði áfram við tómstundaiðkun barna og unglinga með eflingu tómstundakorts.
- Gerður verði þjónustusamningur um rekstur HSSA á grundvelli þess samnings sem unnið er eftir í dag með það markmið að viðhalda núverandi þjónustustigi. Ávallt verði leitast við að mæta þeirri þjónustuþörf sem upp kann að koma í málefnum sjúkra, aldraðra og fatlaðra.
- Vinna áfram að þróunar-, rannsókna- og samstarfsverkefnum og heildstæðri markaðs og kynningaráætlun fyrir sveitarfélagið með það að markmiði að einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir sjái sér hag í að flytja hingað starfssemi sína eða hluta hennar.
- Fylgst verði grannt með dýpi innan hafnarinnar svo umferð sé ávallt hindrunarlaus. Rannsóknarvinnu á Grynnslum haldið áfram í samstarfi við Siglingastofnun með það að markmiði að auka dýpi og siglingaöryggi. Lagfæringu á umhverfi hafnarinnar verði fram haldið.
- Forgangsmál er að breyta legu þjóðvegar í þéttbýli og færa af Hafnar- og Víkurbraut. Varðveita ber sérstakt landslag, víkur, flóa og ræktunarland í sveitarfélaginu. Hjóla- og gönguleiðir ásamt reiðvegum verði hafðar í huga við skipulagsgerð.
- Haldið verði áfram útfærslu á frekari flokkun og móttöku á endurvinnanlegum úrgangi.
- Fyrirhuguðum framkvæmdum við fráveitu á Höfn og fyrir Nesjahverfi lokið. Opnum svæðum og fasteignum í eigu sveitarfélagsins verði sýndur sómi með gróðursetningu, betri umhirðu og viðhaldi.
- Skoðað verði hvernig auka megi framboð á íbúðarhúsnæði á frjálsum leigumarkaði og kannaðir kostir þess að ráðast í tengibyggingu milli íþróttahúss og sundlaugar.
- Efla menningar-, lista- og tómstundastarf í sveitarfélaginu með áherslu á ungt fólk og erlenda íbúa. Svavarssafn, Listasafn Hornafjarðar verði opnað í nýjum sýningarsal árið 2011.
- Verja eins og kostur er hag fjölskyldna og fyrirtækja í sveitarfélaginu í gegnum þrengingar í efnahagslífi landsins.
- Hjalti Þór Vignisson verði ráðinn bæjarstjóri næsta kjörtímabil.
Sjá má stefnuskránna í heild sinni á rikivatnajokuls.is/xb



