Sterk fjárhagsstaða Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Fjárhagur Sveitarfélagsins Hornafjarðar er sterkur eins og fram kemur í nýbirtum ársreikningi fyrir árið 2009. Um það verður ekki deilt og raunar hafa fjölmiðlar á landsvísu haldið þessu á lofti.
Nú síðast var umfjöllun í Viðskiptablaðinu sem benti á sterka fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Því hefur verið haldið fram af öðrum fulltrúa sjálfstæðismanna í bæjarstjórn að glópalán ráði mestu um þessa stöðu. Sú fullyrðing stenst engan veginn skoðun og er í raun móðgun við starfsfólk og stjórnendur sveitarfélagsins.
Í stuttu máli skýrist góð rekstrarniðurstaða undanfarin ár af því að tekjur jukust fram til ársins 2007. M.a. úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem hefur sannarlega það hlutverk að jafna aðstöðumun íbúa í landinu. Á sama tíma lækkuðu gjöld og skuldir voru greiddar niður. Að raungildi lækkuðu útgjöld sveitarsjóðs úr 1.376 m.kr. árið 2006 í 1.251 m.kr.árið 2009 eða um meira en 100 m.kr.
Á þessu ári koma breytingar sem gerðar voru á rekstri Grunnskóla Hornafjarðar að fullu til framkvæmda og við það sparast tugir milljóna til viðbótar. Af þessu má ljóst vera að við erum betur í stakk búin til að takast á við framtíðina en mörg önnur sveitarfélög.
Að halda vöku sinni.
Rekstur Sveitarfélagsins Hornafjarðar er samt á engan hátt auðveldur og ber fulltrúum í bæjarstjórn sífellt að vera á varðbergi og taka ákvarðanir sem koma að gagni fyrir samfélagið. Til dæmis hefði núverandi bæjarstjórn verið í lófa lagið að auka útgjöld á þeim tíma þegar tekjurnar jukust en það var ekki gert. Þvert á móti var hagrætt í rekstri sveitarfélagsins og útgjöldum haldið í skefjum. Bæjarstjórn hefði jafnframt getað farið aðrar leiðir í fjárfestingum eins og mörg önnur sveitarfélög gerðu á þessum tíma, þ.e. að láta eignarhaldsfélög sjá um uppbyggingu og rekstur ýmissa mannvirkja s.s.sundlauga skóla o.fl. og greiða síðan leigu fyrir afnot. Sem betur fer tóku menn ekki slíka stefnu í fjárfestingum hér því eins og dæmi sanna hefur það valdið sumum sveitarfélögum miklum skaða. Eitt mikilvægasta verkefni bæjarstjórnarmanna er því að halda vöku sinni er varðar fjárhag sveitarfélagsins með ráðdeild og útsjónarsemi að leiðarljósi.
Miklar framkvæmdir.
Þrátt fyrir að staðið hafi verið á bremsunni, útgjöld lækkuð og skuldir greiddar niður hefur verið framkvæmt fyrir háar fjárhæðir. Íþróttamannvirki eru orðin sambærileg við það sem best gerist á landsbyggðinni. Húsnæði Hafnarskóla var tekið til gagngerra endurbóta enda löngu tímabært. Hafist var handa við að gera Sindrabæ þannig úr garði að hann henti betur til kennslu og flutnings á tónlist. Nýr 150 m viðlegukantur hefur verið byggður í Álaugarey og er þá fátt eitt nefnt. Á næstu árum þarf að halda áfram að leggja fjármuni í viðhald og endurbætur á núverandi húsnæði sveitarfélagsins. T.d. blasir við að gera þurfi bragarbót á húsnæði Heppuskóla og kanna verður kosti þess að ráðast í tengibyggingu á milli íþróttahúss og sundlaugar.
Sveitarfélagið þarf að hlúa vel að byggð í sveitum. Síðustu misseri hafa fært okkur sanninn um mikilvægi fjölbreytts atvinnulífs í sveitum. Landbúnaður er í framför og ferðaþjónusta er í stöðugri sókn. Stofnun atvinnu- og rannsóknasjóðs og stuðningur sveitarfélagsins við smáframleiðslu matvæla hefur að stórum hluta farið til sveitanna. Þá studdi sveitarfélagið við lagningu ljósleiðarakerfis í Öræfum og hluta Suðursveitar og jarðhitaleit stendur yfir. Enn betur má ef duga skal. Framþróun í kornrækt, stuðningur við orkuöflun og fjarskipti, aukin vetrarferðaþjónusta og uppbygging á vegum Vatnajökulsþjóðgarðs við náttúruperlur svæðisins eru allt verkefni sem bæjarstjórn verður að leggja lið með íbúum til sveita.
Framtíðin.
Næsta kjörtímabil verður án efa markað af stöðu íslenska ríkisins og hvernig því tekst að vinna sig í gegnum núverandi þrengingar. Eitt helsta verkefni nýrrar bæjarstjórnar verður að verja eins og kostur er hag fjölskyldna og fyrirtækja í Sveitarfélaginu Hornafirði og sjá til þess eins og kostur er, að þau lífsgæði sem við búum við í dag rýrni ekki. Það kann að verða snúið en með samheldni og skynsemi ásamt þeirri ágætu stöðu sem ríkir í fjármálum, ætti okkur íbúum sveitarfélagsins, að takast það.
Reynir Arnarson.
skipar 1. sæti á lista Framsóknar og stuðningsmanna þeirra.



