Hvað er ég nú búin að koma mér út í ?
„Hvað er ég nú búin að koma mér út í ?“ er spurning sem að ég spurði mig að fyrst eftir að ég tók þá ákvörðun að blanda mér í bæjarpólitíkina. En eftir því sem oftar er sest niður og bæjarmálin rædd þá sannfærist ég betur, að þetta er eitthvað sem að skiptir okkur öll máli. Hvort sem kemur að börnunum okkar, öldruðum foreldrum, umhverfinu eða bara öll því sem að snýr að samfélaginu okkar.
Skólamálin eru þó það sem stendur mér næst en ég á eitt barn á leikskóla og annað í grunnskólanum. Þegar skoðaðar eru fundargerðir fráfarandi skólanefndar þá er á síðasta kjörtímabili tekin ákvörðun um að leikskólarnir séu reknir sem tveir sjálfstæðir leikskólar. Síðan var hafist handa við að skipuleggja sameiningu grunnskólans úr þrem skólum í einn Grunnskóla Hornafjarðar.
Margir segja að einn leikskóli eigi að vera eins og einn grunnskóli.
Auðvitað á sú hugmynd fullkomlega rétt á sér. En ég tel að á síðasta kjörtímabili hafi þetta mál verið afgreitt með þessum hætti og sé í dag í góðum farvegi. Það eru ekki liðin 4 ár frá þessum breytingum og tel ég að við þurfum að fá meiri reynslu á málið áður en að við eyðum meiri tíma og kröftum í það. Ein samfella úr leikskólastarfi frá eins árs aldri til fimm ára er sá lágmarkstími sem þarf að líða til að geta metið reynslu, áður en hægt er að segja að þessi ákvörðun sé eitthvað sem að þarf að endurskoða. Frekara samstarfstarf er hins vegar af hinu góða og liggur meira í innra starfi leikskólanna.
Sumarlokun leikskólanna er ennþá umdeild, en skoðum málið nánar Samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var um sumarlokun leikskólanna var niðurstaðan sú að ekki var talin ástæða til breytinga á núverandi fyrirkomulagi. Þrátt fyrir að óánægju raddir heyrist komu þær ekki fram með afgerandi hætti í könnunni.
Eftir gagngerar endurbætur á húsnæði Hafnarskóla, er tími til að horfa fram á veginn hvað varðar húsnæði Heppuskóla. Þar er virkilega komið að endurbótum og þarf að gera það með varanlegum hætti. Einnig að hugað verði að framtíðarlausn hvað varðar verkmenntahús. Leigusamningur núverandi húsnæðis rennur út árið 2014 og því á hendi verðandi bæjarstjórnar að vinna að framtíðarlausn á því máli.
Gunnhildur Imsland, skipar 7. sæti á lista Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra.



