Fréttir Þorrablót
Nefndin í stúdíóupptökum
Allt lagt undir eins og venjulega þegar um þorrablót Hornfirðinga á stór Reykjavíkursvæðinu er að ræða.
Nú er allt klárt og skemmtiatriðin tilbúin en nefndin brá sér í stúdío í loka upptökurnar fyrir blótið. Hvað þar er á ferðinni fá aðeins þeir að vita sem mæta á hið marg rómaða þorrablót Hornfirðinga. Svo ekki bíða lengur með að skrá ykkur kæru Hornfirðingar, mætum þar öll og höfum það gaman saman.
Þetta fer nú fram í þrítugasta og fimmta skipti og verður haldið annað kvöld þ.e. laugardagskvöldið 9.febrúar 2013
í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi.




