Fréttir Þorrablót

Þorrablót 2010
Þorrablót 2010
Mynd 3 af 6
1 2 3 4 5 6

Að loknu Þorrablóti Hafnarbúa

27.01.2010 Fréttir Þorrablót

 

Nú er nýafstaðið þorrablót Hafnarbúa en það fór fram laugardaginn 23. janúar s.l. Er það mál manna að það hafi verið besta blót sem haldið hefur verið síðastliðin ár.

"Fjölmennasta blótið, besta hljóðkerfið, nóg af mat, bestu skemmtiatriðin og lang- langbesta skemmtinefnd til þessa" þessi orð brenna á vörum magra sem sóttu blótið. 415 miðar seldust upp á hálftíma eftir að miðasala opnaði á fimmtudeginum fyrir blótið og var bætt við 20 sætum til að losa um biðlistann. Með nefndinni, kokkum, þjónum og dyravörðum hafa verið tæplega 500 manns í salnum og er þetta líklegasta fjölmennasta blót sem haldið hefur verið .

Nýtt í salnum voru „draperingar“ eða tjöld á veggjum íþróttasalsins sem gerðu salinn miklu huggulegri. Glæsileg sviðsmynd prýddi sviðið sem máluð var af Sívari Árna Scheving og verður hún jafnvel boðin upp ef vel liggur á nefndinni. Mjög gott hljóðkerfi var leigt og heyrðu allir mjög vel á meðan skemmtiatriðin fóru fram og flott ljós voru á staðnum. Hótel Höfn sá um matinn sem þótti góður og var nóg til af öllu.  Þetta ásamt frábærum skemmtiatriðum, þar sem fast var skotið vítt og dreift um bæjarfélagið, gerði þetta að frábærri og fagmannlegri skemmtun, en það bíða margir spenntir eftir að geta séð upptöku af skemmtiatriðunum.

Að lokum sáu svo Bjartur Logi og hljómsveitin Poppsmiðjan um fjörið fram eftir nóttu.

Nú eru komnar myndir af skemmtiatriðunum inn á myndasafnið á vefnum, sjá hér, og væntanlegar eru myndir af blótinu sjálfu.  

Vill þorrablótsnefnd 2010 koma á framfæri þökkum til allra sem aðstoðuðu og svo til allra sem komu blótið, Takk fyrir skemmtunina! 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica