Fréttir Þorrablót

Æfing fyrir þorrablót 2010
Æfing fyrir þorrablót 2010

Papparassar náðu þessari mynd á æfingunni í gær

18.01.2010 Fréttir Þorrablót

 

Nú er loka spretturinn að hefjast hjá þorrablótsnefndinni. Gríðarlegt fjör er á æfingum og hlátrasköllin heyrast langt út á götu. Paparassar náðu þessari mynd á æfingunni í gær, en þeim var snarlega hent öfugum út þar sem um hernaðarleyndarmál er að ræða. Mikil átök hafa verið á æfingum og djöflagangurinn eftir því. Að minnsta kosti einn nefndarmeðlima er í gifsi. Viðkomandi heldur verkjum niðri með heimaræktuðum plöntum héðan úr Ríki Vatnajökuls.

Nefndin vonar að enginn láti þessa frábæru skemmtun fram hjá sér fara.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Nefndin.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica