Fréttir Þorrablót

Steinþór og Solla heiðursgestir
Steinþór og Solla heiðursgestir
Steinþór og Solla heiðursgestir á Þorrablóti Hornfirðinga á stór-Reykjavíkursvæðinu.

Engin kreppa á Þorrablóti Hornfirðinga stór-Reykjavíkursvæðinu

30.01.2009 Fréttir Þorrablót

Heiðursgestir Þorrablótsins í ár verða Steinþór Hafsteinsson og Sólveig Sveinbjörnsdóttir.  Steinþór og Sollu þarf vart að kynna fyrir Hornfirðingum en þau eru bæði tvö fædd hér og uppalin. Á blótinu verður að vanda flutt Minni karla og Minni kvenna. Veislustjóri kvöldsins verður engin önnur en leikkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir og þarf varla að kynna hana frekar.  Við Hornfirðingar vitum öll hver hún er og þekkjum hana flest undir nafninu Lolla.

Hlómsveit kvöldsins, Ingó og Veðurguðirnir. Það má segja að það verði engin kreppa á Þorrablóti Hornfirðinga. Það verður sannkölluð Bahama stemming og ekkert til sparað til að þorrablótið verði sem allra eftirminnilegast. 
Nefndin hefur ráðið Ingó Idol og Veðurguðina til að syngja kraft í hjörtu okkar. Sveitin sem kemur frá Selfossi og nærsveitum hefur getið sér gott orð og er orðin alvön í að skemmta fólki á öllum aldri. Sveitin hefur átt nokkra smelli sem hafa glatt okkur daginn út og inn á öldum ljósvakans. Hvaða mannsbarn kann ekki textann við „Bahama“, ef ekki þá lærir þú hann á blótinu. Eða eins og stelpurnar í nefndinni sögðu um hljómsveitina. „Þetta eru ekki bara myndalegir strákar, heldur kunna þeir líka að syngja og spila“.


Þorrablótið er hið 31. í röðinni sem brottfluttir Hornfirðingar halda fer fram það í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi 14. febrúar n.k. (skráning hér)

Við hlökkum til að sjá sem allra flesta á okkar árlega þorrablóti.


- Þorrablótsnefnd 2009 (á stór-Reykjavíkursvæðinu)

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica