Fréttir Þorrablót
Örtröð í tískuverslunum
Þorrablótið nálgast
Dagar líða og þorrablótið nálgast óðfluga. Heyrst hefur að mikil örtröð sé í tískuverslunum bæjarins þar sem karlar og konur versla föt í stórum stíl til þess að vera nú flott á þorrablótinu. Þetta gerist þrátt fyrir bankahrun og kreppu og eru verslunareigendur að vonum glaðir yfir þessu. Þorrablótsnefndin hefur einnig lagt talsverðar upphæðir til fatakaupa en er flottari á því heldur en hinn almenni bæjarbúi. Fyrir nefndarfólk dugar ekkert annað en sérhannaður og klæðskerasaumaður eðalfatnaður sem Bogga í Segl og saumi leggur nú nótt við dag í að skapa. Dansdívur nefndarinnar æfa þorradansa í minna glæsilegum fötum, eins og sjá má á þessari mynd, þangað til Bogga hefur lokið sínu verki.




