Fréttir Þorrablót
Þorrablótið nálgast
Þorrablót Hafnarbúa
Þorrablót Hafnarbúa er nú óðum að taka á sig mynd. Nefndin hefur verið dugleg að hittast til að semja og æfa skemmtiatriði. Heyrst hefur að Hornfirðingar séu farnir að spá og spekúlera hvort þessi nefnd ætli að hafa eitthvert þema og þá hvaða þema það sé. Nefndin harðneitar að gefa nokkuð upp um þetta en segist geta sagt að dagskráin sé sambland af sungnum og leiknum atriðum eins og hefð er fyrir. Hins vegar stefni allt í að þorrablótið í ár verði óvejnulega gott. Um matinn sér Hótel Höfn og eru kokkar og starfsfólk hótelsins þegar farnir að undirbúa hann.Kokkarnir Halldór Halldórsson og Kristján Guðnason hafa yfirumsjón með framreiðslu og matargerð. Halldór segir að þeir hafi farið yfir markaðinn og valið það besta frá hverjum framleiðanda en þeir eru úr öllum landsfjórðunugum. Hákarlinn segir Halldór vera mjög góðan og koma frá Djúpavogi. Að sjálfsögðu eru kartöflur og rófur úr heimarhéraði, en súrmaturinn kemur að norðan og harðfiskurinn að vestan. Miðaverði verður stillt í hóf eins og hægt er og kostar hver miði kr. 4.500 -, en miðasalan verður nánar auglýst síðar.




