Fréttir Þorrablót

Laufabrauð
Laufabrauð
Mynd 2 af 2
1 2

Þorrablót Hafnarbúa 2011

Þorrablót

17.01.2011 Fréttir Þorrablót

Laufabrauðið er klárt og ekkert getur komið í veg fyrir árlegt þorrablót Hafnarbúa en það verður haldið laugardaginn 22. janúar næstkomandi í Íþróttahúsinu.

Mikil leynd hvílir yfir öllum gerðum þorrablótsnefndar og til að koma algjörlega í veg fyrir alla leka og njósnastarfsemi hafa fundir nefndarinnar verið haldnir á nýjum stað í hvert skipti. Eins er öllum tölvupóstsamskiptum eytt jafnóðum enda eru kjörorð nefndarinnar í anda Wikileaks eða „lesið og eyðið“ .

Vegna allra þessara varúðarráðstafana hefur engum tekist að komast á snoðir um hvað er í gangi þrátt fyrir þrálátan orðróm um að Öræfingar séu Indíánar og Þorrablótsnefndin hafi keypt sýningarréttin á Hringekjunni næstu 10 ár. En brátt verður hulunni svipt af leyndardómnum því Hafnarbúum og öðrum gestum verður boðið til blóts laugardaginn 22. janúar. Húsið opnar kl.19.30 og borðhald hefst stundvíslega kl.20.30 Hljómsveitin Bermuda leikur fyrir dansi. Miðasala hefst fimmtudag 20. janúar í anddyri íþróttahússins og miðaverð er kr. 5.500. Einnig verður selt inn á dansleik frá miðnætti og kostar miðin kr. 2.500 Hægt verður að borga með greiðslukorti en lang, lang lang best fyrir alla er að greitt sé með reiðufé. Þorrablótsnefnd 2011.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica