Fréttir Þorrablót

Þorrablótsnefndin 2011
Þorrablótsnefndin 2011
Hilmir Steinþórsson, Fanney Magnúsdóttir, Björn Viðarsson, Halldóra Eymundsdóttir og Sæmundur Gíslason.

Þorrablót Hornfirðinga á stór-Reykjavíkursvæðinu

12.01.2011 Fréttir Þorrablót

33 Þorrablót Hornfirðinga á stór-Reykjavíkursvæðinu verður haldið laugardaginn 5. febrúar 2011 og verður það haldið að venju í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi.

Hljómsveitin Mamma skilur allt mun leika fyrir dansi. Ákveðið var að kalla saman stærstu og reyndustu hljómsveit Horfirðinga, fyrr og síðar, til að halda uppi fjörinu og kemur Óli Kalli alla leið frá Svíþjóð til að berja trumburnar. Að þessu sinni skipa nefndina Björn Viðarsson, Fanney Magnúsdóttir, Halldóra Eymundsdóttir. Hilmir Steinþórsson og Sæmundur Gíslason. Veislustjóri verður Björn Viðarsson.

Heiðursgestirnir í ár eru ekki af verri endanum, frekar en vanalega. En það eru félagarnir á Hótel Höfn Gísli og Óðinn, sem halda upp á stór-samstarfsafmæli nú í ár. Miðaverð á blótið er 6000 krónur.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica