Fréttir Þorrablót
Þorrablót Suðursveitunga og Mýramanna
Þorrablót Suðursveitunga og Mýramanna var haldið í Hrollaugsstöðum 7. febrúar s.l. Á blótið mættu liðlega 200 manns og er það eitt það fjölmennasta sem haldið hefur verið í Hrollaugsstöðum. Það fór mjög vel fram og skemmtu ungir sem aldnir sér fram undir morgun. Það er löng hefð fyrir því á samkomum sem þessari að gera góðlátlegt grín að atburðum sem átt hafa sér stað í samfélaginu frá síðasta blóti. Nefndin sem fylgst hafði óvenju vel með mönnum og málleysingjum, lét ekkert fram hjá sér fara. Þessu var síðan komið í gamansaman búning og leitaði nefndin sér aðstoðar og ráðgjafar eftir efnum og aðstæðum. Meðan á borðhaldi stóð rúllaði myndasýning af gömlum bæjarhúsum í sveitunum sunnan Hornafjarðarfljóta. Um veitingar sá Ferðaþjónustan að Smyrlabjörgum og þeir félagar Sævar og Hjörtur léku fyrir dansi fram undir morgun eða allt þar til nóg þótti komið og rafmagn sló út á sviðinu. Öll aðstoð er hér með þökkuð.
Þorrablótsnefndin þakkar öllum þeim sem skemmtu sér á Þorrablóti Suðursveitunga og Mýramanna kærlega fyrir komuna. Ekki síst öllu unga fólkinu sem setti mikinn svip á blótið, en athygli vakti hvernig ungir sem eldri skemmtu sér saman.



