Fréttir Þorrablót
Þorrablót Hafnarbúa
Þorrablót Hafnarbúa var haldið í Íþróttahúsinu sl. laugardag við húsfylli en á blótið voru seldir 405 miðar. Þema blótsins var ABBA og skartaði nefndin ABBA búningum sem Sigurborg Svavarsdóttir í Segli og Saum hannaði og saumaði.
Veislustjórarnir Jóhannes Danner og Sigbjörn Guðmundsson stjórnuðu borðhaldinu með gamanmálum og skutu inn fjöldasöng sem vel var tekið undir af blótsgestunm. Rammi annálsins var spurningakeppnin "Ekkert svar" og voru flutt bæði leikin og sungin atriði sem beint var að íbúum bæjarins að vanda. Hótel Höfn sá um mat og aðrar veitingar og þótti standa sig vel í því. Eftir dagskrána sá hljómsveitin KUSK um stuð og sveiflu við góðan orðstýr. Þorrablótið fór sem sagt vel fram í alla staði og þakkar Þorrablótsnefnd 2008 öllum sem komu að undirbúningi blótsins fyrir samstarfið.
Myndirnar með fréttinni tók Vilhjálmur Þór Ólafsson og verða fleiri myndir frá blótinu aðgengilegar í myndasafni innan tíðar.




