Fréttir Þorrablót
Betra seint en aldrei
Jæja gott fólk þá eru loksins komnar fréttir af þorrablóti Hornfirðinga en vegna mikilla anna þorrablótsnefndar í skemmtanalífinu að undanförnu hefur ekki gefist tími í að semja pistil. Eins og oft er sagt þá er það betra seint en aldrei og vonum við að fólk kunni að meta það. Þorrablótið í ár var Bítlablót með erótísku ívafi sem var endurunnið og vakti það mikla lukku meðal gesta. Mætingin á blótið var mjög góð en seldir voru hátt í 350 miðar. Veislustjórnin var í höndum Sigríðar Birgisdóttur og Þórhalls Þorgeirssonar og var mál manna að þau hefðu staðið sig feikna vel og átt góða spretti. Kynnar kvöldsins voru þau John Lennon ( Margeir Guðmundsson) og Yoko Ono ( Hafdís Hafsteinsdóttir). Þau komu gríðarlega sterk inn og voru í góðum fíling.
Skemmtiatriðin hófust síðan með miklu trukki og allt ætlaði vitlaust að verða. Stemningin í salnum var alveg hreint frábær og hjálpaði það til að gera blótið enn skemmtilegra. Margir hafa haft samband við nefndina og kvartað um að vera enn með strengi í maga vegna þess hve þeir hlógu mikið.
Hljómsveitin Dans á rósum lék svo fyrir dansi og hélt uppi góðri stemningu allt kvöldið. Á heildina litið var Bítlablótið mjög vel heppnað eins og öll blót Hornfirðinga að sjálfsögðu og vill þorrablótsnefnd þakka öllum sem komu að því með einhverjum hætti.
Við í nefndinni hlökkum mikið til að fara á blót á næsta ári og vorum jafnvel að spá í að bjóða okkur aftur fram því við skemmtum okkur svo vel við undirbúninginn.
Næsta nefnd á því mikið fjör framundan og óskum við þeim góðs gengis og mikils hláturs.
Þorrablótsnefnd 2008




