Fréttir Þorrablót

Nefndin_picture137
Nefndin_picture137
Nefndin 2008

Minnti á blótin eins og þau gerðust best í denn.

15.02.2008 Fréttir Þorrablót

Um síðustu helgi var haldið Þorrablót brottfluttra Hornfirðinga, það 30. í röðinni. Blótið var haldið á sama stað og í fyrra, í Félagsheimili Seltirninga. Metþátttaka var á Blótið í ár eða um 250 manns. Að sögn fróðra manna, minnti blótið í ár, á blótin eins og þau gerðust best í denn. Margt spilaði þar inní. Til dæmis var sérstaklega góð og frjó skemmtinefnd, sem sá um metnaðarfulla hátíðardagskrá, hljómsveit Hauks Þorvalds lék fyrir dansi, auk þess að aðstoða við undirspil í skemmtiatriðum. Að þessu sinn voru heiðursgestir blótsins þau Hjalti Vignisson, bæjarstjóri og Guðrún Ingólfsdóttir. Þótti það ríma vel við 30. Þorrblótið, að hafa unga Hornfirðinga í þessum sætum. Um veislustjórn sá Þorvaldur Hauksson, Þorvaldssonar.

Fyrir setningu blóts var spilað til úrslita í Íslandsmeistaramóti Hornarfjarðar Manna og bar þar Elín Arna Gunnarsdóttir sigur úr bítum eftir harða baráttu við dóttir sína og frænku. Til gamans má geta að Agnes Eymundsdóttir var dregin út í hinu árlega happadrætti og var það vel við hæfi þar sem hún er sú eina sem mætt hefur á hvert einasta blót eða frá upphafi Eins og áður sagði voru skemmtiatriðin vel heppnuð. Sett var upp verðlaunaafhending í anda Óskars-verðlaunanna, en að þessu sinni var Hornfirðingurinn veittur þeim sem þótti skara fram úr á sínu sviði. Höfðu menn orð á því að hin sí-unga hljómsveit Hauks, hafi sjaldan eða aldrei verið betri. Óhætt er að segja, að vel hefði tekist upp í ár og vonandi gefur þetta okkur góð fyrirheit um hvað koma skal á næstu blótum!

Myndir af blótinu

- Nefndin (Rvik)

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica