Fréttir Þorrablót

Geir í hlutverki Skarphéðins á Lindarbakka
Geir í hlutverki Skarphéðins á Lindarbakka
Geir Þorsteinsson í hlutverki Skarphéðins á Lindabakka (úr myndasafni)

Félagsheimilið Mánagarður fær höfðinglega gjöf

05.02.2008 Fréttir Þorrablót

Á Þorrablóti Nesja- og Lónmanna, sem haldið var sl. laugardag, afhentu Þorrablót Nesja- og Lónmanna, Ungmennafélagið Máni og Kvenfélagið Vaka, Félagsheimilinu Mánagarði 80 stóla að gjöf. Það var Ingunn Jónsdóttir í Akurnesi, formaður þorrablótsnefndar 2007, sem afhenti Hauki H. Þorvaldssyni æskulýðs- og tómstundafulltrúa gjafabréf vegna stólanna að viðstöddum Hjalta Egilssyni á Seljavöllum formanni Umf. Mána og Jóhönnu Gísladóttur í Stórulág formanni Vöku. Haukur þakkað þessa höfðinglegu gjöf og sagði hana nýtast vel í því menningar ? og íþróttastarfi sem fram fer í Mánagarði.

Aðsókn var góð á blótinu, hvert sæti skipað og nýttust nýju stólar vel.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica