Fréttir Þorrablót
Verða boðflennur ársins á Hornfirðingablótinu í Reykjavík
Á Þorrablóti Hornfirðinga á stór-Reykjavíkursvæðinu sem haldið verður laugardagskvöldið 9. febrúar n.k. því þrítugasta í röðinni verða Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og kona hans Guðrún Ingólfsdóttir heiðursgestir að þessu sinni. Eins og haft er eftir nefndinni fannst þeim það við hæfi að fá bæjarstórann unga í þetta verkefni þar sem hann er nú jafn gamall blótinu sjálfu. Aðspurður um hvernig það væri að vera "heiðursgestur" á blótinu sagðist Hjalti Þór og brosti við, hafa farið þess á leit við nefndina að orðið "boðflennur ársins" yrði notað í staðinn fyrir "heiðursgestir" sem betur ætti við um heldri menn.
Hljómsveitin á blótinu verður ekki af lakara taginu en það verður engin önnur en hin víðfræga hljómsveit Hauks Þorvaldssonar sem mun leika fyrir dansi á blótinu í ár. Það þarf nú eiginlega ekki að segja neitt meira en hvað er hægt að hafa að betra eins og þeir nefndarmenn komast að orði.
Blótið fer fram í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi
Hér er hægt að panta miða (skráning)
Vefsíða Þorrablótsins á Stór-Reykjavíkursvæðinu




