Fréttir Þorrablót
Miðasala á Þorrablót Hafnarbúa hófst í dag
Þrátt fyrir að mikið latexofnæmi hrjái nefndarmenn Þorrablótsnefndar Hafnarbúa þá var opnað fyrir miðasöluna í dag og fór hún mjög vel af stað. Blótið sem nefndarmenn telja að verði eitt besta bót til þessa, eitthvað sem hefur ekki heyrst frá Þorrablótsnefndum áður hefst stundvíslega á laugardagskvöld kl. 20 en húsið opnar kl. 19:30. Hljómsveitin Dans á rósum leikur fyrir dansi. Aldurstakmark er eins og allaf 18 ár. Einnig er opið í miðasölunni á morgun föstudag frá kl. 17 - 19 í anddyri íþróttahússins.
Miðaverð kr. 5.000.- og vilja nefndarmenn koma því til skil að ekki er tekið við kortum og því er kjörið að fara í hraðbankann í Miðbæ eða Sparisjóðinum áður .



