Fréttir Þorrablót
Þrítugasta þorrablót Hornfirðinga á stór-Reykjavíkursvæðinu
Þorrablót Hornfirðinga á stór-Reykjavíkursvæðinu sem er það 30 í röðinni verður haldið þann 9. febrúar 2008 í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Nefndin komin á stjá og er reyndar búin að vera ástjái um nokkurt skeið. Í nefndinni eru Bjartur Logi, Sigríður Sif, Jón Guðmunds, Valdi Hauks, Geir Björns, Friðdóru Kristins og Júlli í Sólbæ. Blótið verður haldið í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi og mun fyrirtækið Veislan mun sjá um veitingar. Miðaverðið að þessu sinni verður 4.900,- kr. og kr. 1.500 bara á ballið.
Búist er við að þetta blót slái öll þátttökumet en í fyrra var frábær mæting og mikil og góð stemning, áætlað var að milli 170-180 manns hafi látið sjá sig á því blóti.




