Fréttir Þorrablót

Þorrablót Hornfirðinga á Höfuðborgarsvæðinu 2007
Þorrablót Hornfirðinga á Höfuðborgarsvæðinu 2007 (úr myndasafni)
Hér eru Kallarnir að bjóða hinum eina sanna Klemma í nefið, við mikinn fögnuð veislugesta @Geir.
Mynd 1 af 2
1 2

Góð mæting á Þorrablót Hornfirðinga á höfuðborgarsvæðinu

05.02.2007 Fréttir Þorrablót

Það var frábær mæting á blótið í gærkvöldi og mikil og góð stemning en áætlað er að milli 170-180 manns hafi látið sjá sig. Var gerður góður rómur að skemmtiatriðum og blótinu í heild. Eftir magnaðan inngang veislustjórans Valda Hauks, komu Óli Gísli og Kári Sölmundar með "Minni kvenna" og komu þeir með vel útfært innlegg í þá eilífu umræðu. Síðan stigu á stokk þær stöllur Védís Skarphéðins og Signý Rafns með "Minni karla" og vöktu ekki síðri lukku. Þá var komið að heiðursgestunum sem voru að þessu sinni þeir Kalli Eysteinn og Kalli Birgir eða Kallarnir. Það er vægt til orða tekið að segja að þeir komu sáu og sigruðu með söng og glensi. Kallarnir hafa engu gleymt þó komnir séu í hinn vafasama hóp hinna útvöldu heiðursgesta. Að síðustu var svo heimsfrumsýning á revíunni "Slagsmál ríðingar og fyllerí" og var hin sjálfhverfa þorrablótsnefnd þar að verki.

Ekki bar á öðru en gestir kynnu vel að meta dagskránna alla og voru flytjendum öllum klappað lof í lófa vel og lengi.
Að formlegri dagskrá lokinni var svo dansleikur við undirleik hljómsveitarinnar Parket og héldu þeir uppi miklu stuði langt fram eftir nóttu.

Þorrablótsnefndin kaus svo sjálfa sig í nefnd næsta árs að viðbættum þrem sem eru þau Jón Guðmundsson, Bjartur Logi og Friðdóra Kristins.
Það er eins gott að hafa vaskan hóp að verki því næsta blót verður það þrítugasta í röðinni í þessari blótaröð og er hefð fyrir því að halda uppá öll slík afmæli með glæsibrag. Tíminn verður svo að leiða í ljós hvernig til tekst með það.

- Þorrablótsnefnd 2007

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica