Fréttir Þorrablót

Björgvin
Björgvin
Björgvin SF-50

Bryggan og bátarnir þema blótsins

25.01.2007 Fréttir Þorrablót

Á Þorrablótum Hornfirðinga á stór-Reykjavíkursvæðinu undanfarin ár hefur verið í gangi þema hvers blóts, svo sem eyjar í Hornafirði, sveitabæir og Hornfirskir hestar svo eitthvað sé nefnt. Nefndin í ár ætlar að ætlar ekki að gera neina undantekningu á þessari skemmtilegu hefð því hefur hún valið þemað "bryggjan og bátarnir" og mun bryggjustemningin verða áberandi á blótinu sem enginn brottfluttur Hornfirðingur ætti að láta fram hjá sér fara enda einvala lið í nefndinni þetta árið eins og undanfarin ár. Að sögn formanns nefndarinnar Geirs Björnssonar þá er mikilvægt að koma fagnaðarerindinu áfram til vina, ættingja og kunningja og láta þá vita af blótinu.

Blótið verður haldið þann 3. febrúar n.k. í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi.

Sjá nánar hér

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica