Fréttir Þorrablót
320 miðar seldir á fyrsta degi
Mikil ásókn hefur verið í miða á Þorrablót Hafnarbúa og seldust 320 miðar á fyrsta degi. Búið er að stilla upp sviðsmynd og verið er að leggja síðustu hendur á skreytingu á salnum. Starfsmenn Sveitarfélagsins hafa staðið í því í dag að ryðja snjó fyrir framan íþróttahúsið til að bæta aðgengi þorrablótsgesta. Vertinn á Víkinni er klár með þorramatinn og segir hann hákarlinn sérlega góðan þetta árið. Hafi það ekki komið fram áður hér á vefnum þá vill nefndin 2007 koma því áleiðs að þeir telji þetta trúlega verða besta blót til þessa.
Og á léttum nótunum þá beinir Þorrablótnefnd þeim tilmælum til þeirra sem ætla á blótið og eiga eftir að kaupa miða að kaupa hann ekki af þeim sem eru fyrir utan Íþróttahúsið og eru að selja miðann á svörtu heldur koma inn í hitann og kaupa miða af nefndinni.




