Fréttir Þorrablót
Fyrstu menn mættu um 8 leitið í morgun til að tryggja sér miða
Miðasalan á þorrablót Hafnarbúa í Íþróttahúsinu hefst í dag kl. 17:00 og í morgun voru fyrstur menn mættir til að tryggja sér miða á blótið. Að sögn Þórarins Birgirssonar nefndarmanns er um að ræða 400 miða sem verða seldir og gildir reglan fyrstir koma fyrstir frá. Búist er við að miðarnir seljist hratt enda talar þorrablótsnefndin 2007 um að þetta verði trúlega besta þorrablót til þessa. Menn höfðu það á orði að það væri undarlegt að Gulla rammi væri ekki mættur þar sem hann byrjar yfirleitt vaktina nóttina áður til að tryggja fyrsta sæti í biðröðinni. Sagt er að Gulli hafi haft það fyrir sið að taka með sér uppblásna plastdúkku með kringlóttan munn sem hann hafði fjárfest í "Dótabílnum" þegar hann var hér á ferðinn og hafi dúkkan verið staðgengill Gulla í röðinn til að hann gæti skroppið á salernið.
Vakti þessi dúkka eðlilega upp spurningar hjá krökkunum í Heppuskóla og svaraði Gulli því til að að ástæðan fyrir kringlótta munninum væri að þetta væri uppblásin söngkona.




