Fréttir Þorrablót

Góuhóf 2005 @SMS
Góuhóf 2005 @SMS
Glæsilegt Þorrahlaðborð í Öræfum @SMS (úr myndasafni)

Þorrablót í Freysnesi á bóndadag

17.01.2007 Fréttir Þorrablót

Þorrablót fyrir Öræfinga verður að venju í Hótel Skaftafelli Freysnesi á föstudaginn, bóndadag kl.20.00. Venjan hefur verið sú að hafa blótin tvö, annað fyrir karla hitt fyrir konur segir Anna María hótelhaldari, en tilraun var gerð í fyrra með að hafa eitt sameiginlegt blót og tókst það svo ljómandi vel að ákveðið hefur verið að hafa sama hátt á núna. Svo þetta valdi ekki misskilningi er rétt að taka fram að ástæðan fyrir sér þorrablótum fyrir hvort kyn var einungis gert til að allir ættu þess kost að komast á þorrablót því á barnmörgum heimilum áttu hjón ekki auðvelt með að fara bæði í einu að heiman en nú er öldin önnur og því var ákveðið að breyta þessu. Þessi þorrablót eru frábrugðin hefðbundnu blótum að því leiti að ekki er nein skemmtidagskrá, við komum bara saman og borðum góðan þorramat og röbbum og það þarf engin tilbúin skemmtiatriði því það eru allir svo hressir og skemmtilegir og njóta þess að eiga notalega kvöldstund saman.

Aðspurð um hvort einhver munur væri á þorrablótum karla og svo kvenna sagði Anna María að það væri alveg ótrúlega mikill munur, karlarnir töluðu og töluðu og ræða málin alveg út í það óendanlega, alveg ótrúlegt hvað þeir geta talað mikið (einhver mundi nú halda að það væru konurnar) en konurnar gerðu meira af því að syngja og hafa þetta svona á léttari nótunum. Unglingar eru velkomnir með foreldrum sínum. Anna María segir að engar myndir séu fáanlegar frá fyrri blótum því myndatökur hafi ekki tíðkast þar en hvað verði eftir þetta sameiginlega þorrablót er hugsanlegt að breyting verði þar á.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica