Fréttir Þorrablót
Hljómsveitin Hraun spilar á Þorrablóti Hafnar
Nú líður að þorrablóti Hafnarbúa sem verður næstkomandi laugardagskvöld, verið er hnýta síðustu lausu endana og allt að verða tilbúið fyrir þennan árvissa stórviðburð sem fáir láta fram hjá sér fara. Allt hefur gengið samkvæmt áætlun og hefur nefndin verð mjög samstíga og sérstaklega skemmtilegur mórall á æfingum. Sú breyting verður á að vegna tvíbókunar hljómsveitarinnar Buff þá mun hin frábæra hljómsveit Hraun sjá um að skemmta á dansleiknum. Rétt er að taka fram að hljómsveitin tengist ekkert fasteignasölunni Hraun á Höfn, Sigga er ekki söngkona, Snorri er ekki á gítar og Stebbi spilar ekki á orgel, hið rétta er að hljómsveitin er frá Reykjavik og er skipuð Svavari Knút söngvara sem var valinn trúbador íslands 2005, Loftur er á bassa, Guðmundur spila á gítar, hann hefur verið í hljómsveitinni Bris, Hjalti sem spilar á ýmis hljóðfæri svo sem flautu og mandólín, Jón Geir er á trommur en hann sem hefur verið í hljómsveitum eins og Ampop og Appolo.
Þorrablótsnefndin hlakkar til að taka á móti öllum Austur Skaftfellingum og gestum þeirra á laugardaginn þar sem söngur grín og dans mun duna fram á nótt
Þorrablótsnefnd 2007.




