Fréttir Þorrablót

Kalli og Kalli
Kalli og Kalli
Heiðursgestir 2007 eru engir aðrir en Kallarnir margfrægu og þarf vart að kynna þá nánar.
Mynd 1 af 2
1 2

Kappkosta við að halda gömlum hefðum á lofti

16.01.2007 Fréttir Þorrablót

Þorrablót Hornfirðinga á stór-Reykjavíkursvæðinu verður haldið þann 3. febrúar 2007 í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Þorrablótsnefndin ætlar að kappkosta að halda gömlum hefðum á lofti og verður ekki skorast undan því að hafa revíu uppá gamla mátann. Æfingar standa nú yfir af fullum krafti en mesti krafturinn fer nú samt í að læra alla textana. En nefndarmenn lofa að það muni ekki verða til vandræða þegar á hólminn er komið. Einnig verða minni karla og kvenna á sínum stað. Védís og Signý ætla að sjá um minni karla að þessu sinni en minni kvenna verður í höndum Óla Gísla og Kára Sölmundar.

Skráning á þorrablótið er hafin og vill nefndin biðja fólk sem ætlar að mæta að skrá sig hér og gefa upp þær upplýsignar sem menn kæra sig um að láta af hendi, en nafn og netfang er algert skilyrði. Vill nefndin beina því til allra að koma fagnaðarerindinu áfram til vina, ættingja og kunningja svo sem flestir mæti á blótið.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica