Fréttir Þorrablót

Þorrablót Hafnarbúa 2007
Þorrablót Hafnarbúa 2007
Þetta má enginn láta framhjá sér fara. Þessari mynd var laumað út frá æfingu nefndarinnar (Mynd:fæst ekki gefið upp)
Mynd 2 af 2
1 2

Nú er frost á fróni, frýs í æðum blóð og hvað er þá betra en að skella sér á þorrablót.

16.01.2007 Fréttir Þorrablót

Nú er farið að styttast allverulega í Þorrablót Hornfirðinga og er nú um að gera að fara að huga að dansskónum og þorragallanum. Blótið verður með eindæmum skemmtilegt þetta árið eins og svo oft áður en það þykir hafa tekist einstaklega vel til núna(að mati nefndarinnar). Allt er að smella, atriðin orðin vel æfð, nefndarmenn komnir í fíling og sumir svo mikinn að hætta er á að einhverjir fái fráhvarfseinkenni þegar þessari vinnu lýkur. Undirrituð hefur verið í sambandi við veðurstöðvar víða um heim og er það nokkuð ljóst að veðrið hér heima verður með afbrigðum gott, nema að það hefur verið spáð brælu svo allir sjómenn komist á blótið.


Okkur stelpurnar í þorrablótsnefnd 2007 langar að óska öllum strákum, litlum, stórum, ungum sem öldnum innilega til hamingju með daginn á föstudag og vonum að þið njótið dagsins.
Minnum svo á miðasöluna á fimmtudag og föstudag frá kl. 17-19 í andyri þróttahússins
Húsið opnar svo klukkan 19.30 á laugardagskvöldið og hlökkum við til að taka á móti ykkur á slóðum nýrrar sundlaugar.

Bestu þorrakveðjur,
f.h. Þorrablótsnefndarinnar 2007 sem brátt lýkur sínu hlutverki
Ragnheiður R.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica