Fréttir Þorrablót
Jafnvel ryðguðustu dansarar eru byrjaðir að æfa
Eins og áður hefur komið fram er búið að ráða eina af bestu danshljómsveitum landsins til að spila fyrir dansi á Þorrablóti Hornfirðinga þann 20. janúar n.k. Til að aflétta ákveðinni spennu sem gert hefur vart við sig hjá hinum ýmsu þjóðfélagshópum höfum við afráðið að segja frá því hér og nú að það mun vera dans og gleðisveitin Buff sem stígur á stokk. Við í nefndinni eru stolt af því að geta boðið sveitungum okkar og gestum þeirra upp á svo góða hljómsveit og höfum við fregnir af því að jafnvel ryðguðustu dansarar séu byrjaðir að æfa... Ættum nú kannski ekki að nefna nein nöfn en það er fólk eins og; Gísli á hótelinu, Hjálmar sjúkraþjálfari(sem er nú nokkuð þokkalegur í fótunum), ásamt Dansparinu Rakel og Sævari sem hafa sýnt ótrúlega takta. En þið sjáið þetta nú allt eftir nokkra daga.
Nefndin 2007 er farin að hlakka til að sýna sig og sjá aðra svo við sendum út til ykkar okkar bestu kveðjur.
Fyrir hönd nefndarinnar, Ragnheiður Rafnsdóttir.




