Fréttir Þorrablót

Þorrablót 2007 undirbúningur
Þorrablót 2007 undirbúningur
Undirbúningur fyrir Þorrablótið
Mynd 2 af 3
1 2 3

Nauðsynlegt að gera grín að bæjarstjóranum á blótinu

05.01.2007 Fréttir Þorrablót

Nú styttist óðum í þorrablót Hornfirðinga en það verður haldið 20.janúar n.k. Mikil vinna liggur að baki þessum mannfagnaði en á móti kemur að nefndarmenn skemmta sér líka ákaflega vel við þessi störf. Stífar æfingar standa nú yfir en ekki er hægt að greina frá æfingarstað þar sem ljóst þykir að fólk myndi liggja þar á gluggunum. Hins vegar getur undirrituð greint frá því að skemmtiatriðin eru feikna góð og margir bæjarbúar sem koma við sögu enda afspyrnu skemmtilegt fólk á Hornafirði. Af mörgu er að taka eins og áður sagði en til að gefa ykkur smá brot af dagskránni þá kemur sundlaugin sterk til greina og svo er alltaf nauðsynlegt að gera grín að bæjarstjóranum eða finnst ykkur það ekki?


Svo er spurning hvort það er hægt að gera grín að einhverjum í Heppuskóla en það verður að koma í ljós 20. Janúar. Búið er að ráða landsþekkta hljómsveit sem verður nafngreind síðar en við lofum að engin mun sitja kyrr við þeirra hljóðfæraleik, meira að segja fúnustu fætur taka að hreyfast. Við í nefndinni 2007 vonum að Hornfirðingar til sjávar og sveita ásamt öðrum gestum mæti hressir og kátir til að blóta þorrann, borða góðan mat og skemmta sér í góðra vina hópi.

Með kveðju og ósk um að nýtt ár verði okkur öllum bjart og gæfuríkt, f.h. þorrablótsnefndarinnar 2007. Ragnheiður Rafnsdóttir

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica