Fréttir Þorrablót
Nefndarmenn hafa galdrað fram hin æsilegustu atriði
Stífar æfingar hafa staðið yfir hjá Þorrablótsnefnd Hornfirðinga, enda af mörgu að taka. Margir fundir hafa þegar verið haldnir og hafa nefndarmenn galdrað fram hin æsilegustu atriði, ekki hefur þó verið þörf á að kalla til lækna. Stundum hefur þó staðið tæpt þar sem hlátrarsköllin eru mikil en þess skal getið að það er með eindæmum skemmtilegt fólk í nefndinni. Hefð er fyrir því að ljóstra ekki upp neinu varðandi þema og skemmtun blótsins og má segja að slíkt hið sama verði upp á teningnum að þessu sinni með nokkrum undantekningum þó því heyrst hefur að fjölmiðlafulltrúi nefndarinnar hafi kynnt sér hleranir og láti leka til fjölmiðla þegar lengra líður. Svo það er eins gott að fylgjast með!!!
Æfingar hafa nú verið stöðvaðar fram yfir hátíðarnar en vitað er um nokkra sem koma til með að æfa ýmis atriði milli jólaboða.....
Nefndin vill nota tækifærið og óska Hornfirðingum og nærsveitungum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Við hlökkum til að sjá sem allra flesta á þorrablótinu 20. Janúar 2007 sem mun skarta góðum skemmtiatriðum að vanda ásamt góðum mat, svo ekki sé minnst á hljómsveitina....
Jólakveðjur
Þorrablótsnefndin




