Fréttir Þorrablót
Þorrablót á Hrollaugsstöðum annað kvöld
Nú styttist í þorrablót Suðursveitunga og Mýramanna en það fer fram á Hrollaugsstöðum annað kvöld. Undurbúningur fyrir blótið hefur gengið mjög vel og er reiknað með mjög góðu blóti. Þeir sem sitja í þorrablótsnefndinni þetta árið eru Anna og Ari á Hólabrekku, Maggi og Guðrún í Hólmi, Siggi og Ingibjörg frá Höfn, Séra Einar frá Kálfafellsstað, Vésteinn Fjölnisson frá Hala og Laufey og Bjössi frá Smyrlabjörgum. Að sögn Laufeyjar þá er mikil tilhlökkun í sveitinni eftir blótinu og vill nefndin fá sem flesta í sveitarfélaginu til að mæta og skemmta sér með þeim á blótinu. Skemmtiatriðin verða með hefðbundnum hætti, þau mál sem hafa staðið uppúr á síðasta ári verða tekin fyrir segir Laufey. Hljómsveit Eyþórs frá Egilsstöðum sér um danstónlistina á ballinu.
Aðsókn á þorrablót í Suðursveit seinni árin hefur verið mjög góð og er reiknað með fjölmenni á þetta blót. Þeir sem ekki hafa boðað komu sína en hafa áhuga á því að mæta geta gert það með því að hafa samband við Magnús í síma 861 5959, 478 1037 eða á Smyrlabjörg í síma 478 1074, 892 9074.




