Fréttir Þorrablót

Þorrablót Nesjum 2006
Þorrablót Nesjum 2006
Nefndin hefur fundað og æft mikið fyrir blótið (Mynd: Pálmi)
Mynd 2 af 2
1 2

Þorrablót Nesja- og Lónmanna næstu helgi

25.01.2006 Fréttir Þorrablót

Þorrablót Nesja- og Lónmanna verður haldið í Mánagarði n.k. laugardag (28. janúar 2006). Að venju verður þar verður fluttur annáll úr Nesjum og Lóni ásamt heimatilbúnum skemmtiatriðum í léttri sveiflu. Húsið opnar kl. 19:30 og þorrablótið verður sett stundvíslega kl. 20:30. Hótel Höfn sér um þorramatinn, sem verður í trogum á borðum þorrablótsgesta, samkvæmt venju. Hljómsveit Rúnars Þórs leikur fyrir dansi. Miðaverð er aðeins kr. 4.500,- og hagstætt verð á öðrum veitingum. Aldurstakmark er 18 ár. Forsala aðgöngumiða verður í Mánagarði fimmtudaginn 26. janúar og föstudaginn 27. janúar milli kl. 16 - 20. Tekið er við debit- og kreditkortum. Miðapantanir og þátttökutilkynningar hjá Ásthildi í síma 866-4721 og Jóa 824-2407.

ATH! Búið er að velja í þorrablótsnefnd 2007.

Umsjónaraðili:
Þorrablótsnefnd Nesja- og Lónmanna

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica