Fréttir Þorrablót
Mikið spáð í veðrið um þorrablótshelgina
Í viðtali við upplýsingafulltrúa þorrablótsnefndar kom fram að vel miðar með leitina að piparsveininum. Búið var að finna nokkra álitlega herramenn og velja fjóra úr þeim hópi. Nú er verið að velja tvo í endanleg úrslit. Það gengur ágætlega þar sem í ljós kom að einn kunni ekki að búa til slátur þrátt fyrir langan starfsferil hjá sláturgerð SS en auðvitað er það ekki sama sláturgerð og við þekkjum þegar um heimagert slátur er að ræða. Fljótlega fór einnig að gæta tortryggni í garð eins keppandans því hann þótti brosa óvenju fallega með mjallahvítum og þráðbeinum tönnum þannig að nú er Jónas formaður ásamt meðstjórnendum sínum að leggja mat á hvort þetta sé ekta eður ei.
Það er mikið spáð í veðrið um þorrablótshelgina og eins og fram hefur komið er spáð brælu hér um slóðir en breskir starfsbræður okkar hafa einnig mikið verið að spá í vetraveðrið og hafa komist að þeirri niðurstöðu að vont veður muni geysa í Englandi þess helgi og því líklegt að öllum leikjum í enska fótboltanum verði aflýst. Góðu fréttirnar eru þær að þeir sem höfðu ætlað sér að horfa á enska boltann þess helgi geta bara farið á þorrablót í staðinn.




