Fréttir Þorrablót
Leitað að hornfirska piparsveininum
Þorrablótsnefnd Hafnarbúa leitar nú að "hornfirska piparsveininum" það reynist ekki létt verk enda eru gerðar miklar kröfur til þess sem valinn verður. Hann þarf meðal annars að kunna að búa til slátur, svíða hausa, leggja í súrt, syngja, dansa og smíða. Hann þarf að vera hagmæltur, skapgóður og eiga frí á miðvikudagskvöldum. Jónas Friðriksson formaður nefndarinnar tekur góðfúslega við ábendingum frá þeim sem þekkja slíkan mann. Nefndin fundar nú stíft og hafa raddir innan hennar sagt að þetta muni verða eitt besta þorblót frá upphafi. Þess ber að geta að nokkrir nefndarmenn teljast kokhraustir yfir meðarlagi.
Að venju var haldið útboð á þorramatnum og voru það helstu veitingarstaðir hér í Sveitarfélaginu sem buðu í bakkann. Búið er að opna tilboðin og verður greint frá því síðar hver mun sjá um matinn.




