Fréttir Þorrablót

Hrollaugstaðaskóli
Hrollaugstaðaskóli
Krakkar á leik við Hrollaugsstaðarskóla

Þorrablót í Suðursveit

02.02.2005 Fréttir Þorrablót

Undirbúningur undir þorrablót í Suðursveit stendur nú sem hæst. Þorrablótsnefndin hefur haft mikið að gera og búist er við góðri þátttöku enda virðist veðurspáin fyrir helgina hagstæð. Þorrablótsnefndina skipa þetta árið Fjölnir og Þorbjörg á Hala, Böddi á Brunnavöllum, Reynir og Katrín á Hlíðabergi, Bogga á Tjörn og Kolbrún og Gísli Jónsson ( fyrrum Hnappavöllum) frá Höfn. Þykjast Suðursveitungar og Mýramenn góðir að hafa getað nappað í einn Öræfing austur yfir sandinn til að starfa með nefndinni, en vegna fólksfækkunar hefur verið leitað til brottfluttra Suðursveitunga um að taka þátt í undirbúningi þorrablóta á síðari árum og fylgdi Gísli því með sem viðhengi. Ekkert er gefið upp um efni skemmtidagskrár, en það er engin bölsýni í sveitafólkinu og vonandi eiga allir eftir að skemmta sér vel. Hljómsveitin Granít leikur fyrir dansi.

Skemmtilegt er að sjá alltaf framan í nýja gesti á hverju blóti, en aðsókn hefur nú seinni árin verið góð, fólk komið alls staðar að úr sýslunni og jafnvel frá Reykjavík. Að þessu sinni er komin mikil þátttaka og þeir sem hafa áhuga á að sækja blótið eru beðnir að tilkynna sig eins fljótt og kostur er.
Þátttaka tilkynnist til Bödda og Boggu í síma 478-2113 eða 896-2114 og í síma 478-1056 eða 862-3994

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica