Fréttir Þorrablót
Mér er sagt að hundar eyði lífi sínu svona
Enn er ábyggilega hægt að skila miðum á Þorrablót brottfluttra Hornfirðinga sem verður á Seltjarnarnesi af öllum stöðum á laugardagskvöldið. Ég myndi gera það ef ég væri ekki veislustjóri sérstaklega eftir yfirlýsingu Ragnhildar Jónsdóttur um að þetta verði e.k. jarðarför. Sjálfum gengur mér illa við undirbúning. Finn hvorki gleraugun mín eða símann eða hinn símann til að hringja í hinn símann sem ég reyni að hafa nálægt gleraugunum til þess að geta hringt í símann og fundið þannig gleraugun. Í gær var ég staddur uppi í herbergi að leita og mundi þá ekki einu sinni eftir því af hverju ég fór inn í þetta herbergi. Mér er sagt að hundar eyði lífi sínu svona. Svo finn ég ekki þennan miða frá þorrablótsnefndinni. Það var mynd af mér á honum sem mér þótti góð.
Verst er að nafnið á húsinu sem jarðarförin verður í var á þessum miða og nú veit ég ekkert hvar þetta er og man ekkert hverjir eru í þessari þorrablótsnefnd þannegin að ef ég verð ekki kominn upp úr átta þá bara að byrja að borða og svo þegar hljóðnar aðeins eftir fyrsta áhlaup veislugesta að matnum getur heiðursgesturinn Krissa byrjað og svo Ragga með minni karla og svo Jón Guðmundsson ef allir verða ekki farnir. Maturinn verður ábyggilega þokkalegur, hann er það oftast nær svo ég endi nú á einhverju uppbyggilegu.




