Fréttir Þorrablót

Ragnhildur Jónsdóttir
Ragnhildur Jónsdóttir
Ragnhildur Jónsdóttir

Er þetta minningarathöfn eða jarðarför karlanna?

26.01.2005 Fréttir Þorrablót

Ha, hvað segið þið? Á ég að flytja minni karla? Mig rekur ekki minni til þess að hafa lofað því. Og hvernig er þetta gert - á að minnast þeirra? Er þetta minningarathöfn eða jarðarför karlanna? Ég hélt að ég væri að fara á þorrablót? Hverjum dettur í hug að láta gamla rauðsokku flytja minni karla? Það er nú ekki allt í lagi með þá manneskju. Í gærkvöldi, þegar "strákarnir okkar" töpuðu naumt fyrir Slóvenum Í handboltanum lýsti Adolf Ingi strákunum sem þrautþjálfuðum kögglum með stálhreðjar!! Engin smá lýsing það. Ætti ég að taka þann pólinn í hæðina eða .....!!!!

Alla vega - á meðan ég er að ákveða mig getið þið skemmt ykkur yfir þessari vísu eftir Hákon Aðalsteinsson um það sem karlar hafa umfram konur:
Oft má glaðan öðling sjá
úti í náttúrunni
hafa báðar hendur á
hengiplöntu sinni.

Hlakka til að sjá ykkur á blóti útlægra Hornfirðinga sem fer fram næstu helgi í Félagsheimili Seltjarnarness
Kveðja, Ragga

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica