Fréttir Þorrablót

Á dansgólfinu
Á dansgólfinu
Frá Þorrablóti Hafnarbúa 2004 (Myndasafn)

Þorrablót Hafnarbúa 2005 að bresta á

21.01.2005 Fréttir Þorrablót

Stóra stundin hjá þorrablótsnefndinni nálgast óðfluga og þorrablótið 2005 er alveg að bresta á. Byrjað var í gær að selja miða á blótið. Sumir mæta tímanlega til að verða fyrstir að ná í miða, sá fyrsti kl. 8.45 í gærmorgun en miðasalan var opnuð kl.17.00. Fréttir af undirbúningi og hvað verði til skemmtunar liggja ekki á lausu en upplýst er að þetta sé afskaplega samstillt og góð þorrablótsnefnd sem leggi allt sitt í að gera blótið sem veglegast. Nefndarmenn eru sjálfir hissa á því hvað þetta gengur allt vel og hvernig hægt er að breyta stóru íþróttahúsi á stuttum tíma í ágætis skemmtistað ef það má kalla það svo. Ein í nefndinni segir að handritið taki stöðugum breytingum og alltaf sé eitthvað nýtt að gerast á hverjum degi. Það eina sem fékkst uppgefið var að eins og undanfarin ár eru stakir sveitungar teknir fyrir og gert að þeim góðlátlegt grín svo það er um að gera að tryggja sér miða á blótið.

Fyrsta þorrablótsnefndin sem vefurinn hefur skráða er frá 1961 og voru 10 manns í henni. Eftir því sem best er vitað var fyrsta þorrablótið á Höfn haldið í barnaskólanum 23.janúar 1960 og sá kvenfélagið Tíbrá um allan undirbúning þess. Þá kom fólk sjálft með sinn þorramat sem borinn var á borð í trogum. Árin 1961 og 1962 voru þorrablótin haldin í gamla Sindra-bragganum. Þá byrjaði tilnefnd þorrablótsnefnd að sjá um alla matargerð fyrir blótin og var maturinn framborinn í trogum. Ekki voru margir dagar til undirbúnings á þeim tíma en allir lögðu sig fram og þetta voru strax vinsælar samkomur. Árið 1963 var fyrsta þorrablótið haldið í Sindrabæ og þar með gjörbreyttist öll aðstaða fyrir þá sem sáu um blótin og ekki síður fyrir blótsgesti.Með árunum hefur fjölgað fólki í þorrablótsnefndum og allur undirbúningur orðinn miklu meiri. Í þorrablótsnefnd 2005 eru 29 manns

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica