Viðburðir þann

23.11.2012, kl.20:00 Skemmtanir

Hagyrðingakvöld í Skaftfellingabúð

Föstudagskvöldið 23. nóvember 2012, kl. 20 verður haldið hagyrðingakvöld í Skaftfellingabúð. Þar koma saman fyrir hönd Austur-Skaftfellinga, Kristín Jónsdóttir, bóndi á Hlíð og Valur Freyr Pálsson frá Breiðabólsstað. Og úr Vestur Skaftafellssýslu þau Ásta Sverrisdóttir bóndi í Ytri Ásum og Valdimar Tómasson lífskúnstner og bóksali í Reykjavík, frá Litlu Heiði í Mýrdal. Stjórnandi er Skúli Oddsson. Að kviðlingum loknum verður hægt að fá sér snúning undir harmonikkuleik til kl. 1. Léttar veitingar í boði. Aðgangseyrir kr. 1500.
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica