Viðburðir þann
EYFI 50 - TÓNLEIKAFERÐ 2011
Tónleikar – Hafnarkirkju fimmtudagskvöldið 6. október
Þann 17. apríl s.l. varð tónlistarmaðurinn Eyjólfur Kristjánsson „Eyfi“ fimmtugur. Af því tilefni hélt hann í mikla tónleikaferð og mun halda 50 tónleika víðsvegar um Ísland.
Ferðin hófst í Hveragerði þann 21. mars s.l. Eyfi lék og söng á 25 tónleikum nú í vor sem leið og mun halda 25 tónleika með haustinu. Eyfi fer yfir ferilinn og spjallar á léttu nótunum við tónleikagesti , rifjar upp gamlar sögur úr bransanum og öll hans bestu lög ( Álfheiður Björk, Nína, Ég lifi í draumi, Kannski er ástin, Danska lagið, Góða ferð, Ástarævintýri(á Vetrarbraut), Dagar, Í brekkunni, Allt búið, o.m.fl. ) munu hljóma í ferðinni. Þetta er í fyrsta sinn, sem Eyfi fer tónleikaferð um landið í nokkuð langan tíma og er til efs að nokkur íslenskur tónlistarmaður hafi farið í svo viðamikla tónleikaferð eins og hófst í mars s.l.
Miðaverð er kr. 2.000 ----- Miðasala við inngang



