Viðburðir þann
Rökkurbandið með tónleika / djammsession á Víkinni
Hulda Rós og Rökkurbandið verða með tónleika / djammsession á Víkinni næstkomandi föstudagskvöld, 3. júní. Dagskráin er fjölbreytt að venju en leikin verða lög eftir hljómsveitir og tónlistarmenn eins og Bob Dylan, The Beatles, Rolling Stones, Otis Redding, Stevie Wonder, Ninu Simone, Little Walter, Simon and Garfunkel, Elmore James og marga fleiri.
Rökkurbandið byrjar að spila kl. 23.00 og á eftir tekur síðan við 90´s diskótek á Víkinni fram eftir nóttu. Kostar aðeins 1000 kr. inn á þennan viðburð en taka skal fram að ekki er tekið við kortum.
Rökkurbandið vonast til að sjá sem flesta hita upp fyrir Sjómannahelgina með þeim á föstudaginn en þetta er jafnframt í fyrsta skipti á þessu ári sem hljómsveitin kemur fram á Höfn. Hljómsveitina skipa: Bjartmar Ágústsson á bassa, Eymundur I. Ragnarsson á trommur, Hulda Rós Sigurðardóttir söngur og Sigurður Guðnason á gítar.



