Viðburðir þann

Týgrisdýr

01.10.2010 - 31.10.2010, kl. 9:00 - 17:00 Sýning Sýning á náttúru og dýralífsmyndum Michael og Felicity Bullock í Nýheimum

Ljósmyndasýning í miðrými Nýheima

Sýning á náttúru og dýralífsmyndum eftir hjónin Felicity og Michael Bullock í Nýheimum í október. Hjónin ferðast út um allan heim og taka myndir og eru reglulegir gestir í sýslunni og eiga hús við Hvalnes í Lóni. Sýningin stendur í október og er opin frá 9:00 til 17:00 alla virka daga og annan og þriðja hvern laugardag frá klukkan 10:00 til 16:00. Allir velkomnir Lesa meira
 
lisa-Thorsteinsdottir

06.10.2010 - 31.10.2010 Sýning Veggurinn minn á Bókasafninu

Veggurinn minn

Veggurinn minn er á sínum stað á Bókasafninu. Ný verk eru sett á vegginn á föstudögum og hanga þau í viku. Þeir sem hafa áhuga á að sýna verk á veggnum geta haft samband við Guðlaugu Ósk í síma 4708057 eða sent póst á veggurinnminn@hornafjordur.is. Lesa meira
 
þna logo

06.10.2010 - 08.10.2010 Menning Menntavika Þekkinganets Austurlands

Menntavika

Þekkingarnet Austurlands heldur menntaviku 4. til 8. október. Tilgangurinn með þessari viku er að skapa umhugsun og umræður um gildi menntunar og hvaða menntatækifæri heimamenn á hverjum stað vilja hafa aðgang að. Frekari upplýsingar og skráning er hjá Nínu í síma 4703840 eða sendið póst á nina@tna.is Lesa meira
 
Álftir

07.10.2010, kl. 14:00 Fundur Aðalfundur "Fuglar á Suðausturlandi"

Aðalfundur samtakanna „Fuglar á Suðausturlandi“ verður haldinn í Nýheimum á Hornafirði fimmtudaginn 7. október kl. 14:00 Lesa meira
 
Bangsasögustund 2008

07.10.2010, kl. 14:15 - 14:45 Skemmtanir Sögustund fyrir yngstu kynslóðina á Bókasafninu

Sögustund Bryndísar

Sögustund fyrir yngstu kynslóðina verður á Bókasafninu á fimmtudögum klukkan 14:15 til 14:45. Bryndís tekur vel á móti börnunum að vanda. Lesa meira
 
Lindy--hop2

07.10.2010, kl. 20:00 - 21:30 Skemmtanir Dans dans dans

Danskvöld á Víkinni

Menningarmiðstöðin í samstarfi við Víkina býður upp á danskvöld fyrsta fimmtudag í mánuði á Víkinni. Kvöldin hefjast klukkan 20:00, en fólki er frjálst að mæta þegar því hentar. Engin hefðbundin kennsla verður á staðnum, heldur eru kvöldin ætluð í dans af öllu tagi, en fyrir þá sem hafa brennandi áhuga á að kenna ný spor er það að sjálfsögðu velkomið. Allir eru velkomnir á þessi kvöld og frítt er inn. Takið endilega með ykkur tónlist og auðvitað góða skapið Lesa meira
 

 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica