Viðburðir þann
Bandamaður náttúrukraftanna
Sögusýning
Sögusýningin „Bandamaður náttúrukraftanna“ um Svavar Guðnason listmálara opnar laugardaginn 4. september kl. 13 í „Kaupfélagshúsinu“ eða Kaupmannshúsi Ottós Tuliniusar. Sýningin er unnin af Huldu Rós Sigurðardóttur listfræðingi en hún hefur undanfarið unnið að mastersverkefni sínu um listamanninn. Verða léttar veitingar í boði og sýningin opin fram eftir degi.
Sýningin verður síðan opin laugardaga og sunnudaga í september frá 13:00-16:00. Einnig er hægt að hafa samband í síma 8668675 og kíkja á sýninguna eftir samkomulagi.



